Snyrtistofan Helena fagra
Alhliða snyrting fyrir bæði kynin
Við erum faglegar og löglegar í 29 ár með leyfi frá Heilbrigðiseftirlitinu og Landlæknir. Þann 14.febrúar 1994 opnaði Snyrtistofan Helena fagra á 2.hæð Laugavegi 101. Þann 1.desember 2000 flutti snyrtistofan í eigið húsnæði að Laugavegi 163. Við erum í rúmgóðu 120 fm húsnæði með 5 meðferðarherbergjum ásamt naglaaðstöðu. Eigandi stofunnar er Brynhildur Stefanía Jakobsdóttir Snyrtimeistari. Hér starfar eingöngu fagmenn í faginu með sveinspróf og meistararéttindi. Snyrting er okkar fag.
STARFSFÓLK
Helena fagra – Sagan
Trjóustríðið
Helena var dóttir Seifs og Ledu drottningar i sögum var hún kvenna fegurst. París var sonur Priamosar konungs af Trjóu.Var hann gjálífur og óbundinn í siðum.Paris nam Helenu fögru á brott frá manni sínum Menelási í Spörtu og flutti með sér til Trjóuborgar og varð það tilefni Trjóustríðsins.
Stríðið hafði staðið yfir í tíu ár þegar þeir sigruðu Trjóu.Menelás hafði heitið að drepa Helenu en fékk aftur ást á henni þegar þessi gyðja í konulíki gekk til móts við hann tíguleg og yndisfull .Flutti hann hana með fögnuði aftur heim til Spörtu og setti á ný í drottningarsæti .Þar verður hún tamin og ráðsett,en gyðjum lík að fegurð sem fyrr.Að hennar sögn var hún orðin fullsödd af vistinni í Tróju þegar borgin féll. (Grikkland hið forna I)
